Stórsigur hjá 4. flokki karla

18. maí 2008

| umsjon

Stórsigur hjá 4. flokki karla

4. flokkur karla lék á föstudaginn frestaðan leik í faxaflóamótinu gegn Njarðvík.  Ekki voru aðstæður hinar bestu, rok og rigning en Þorlákshafnarvöllur var hins vegar í góðu standi.  Okkar strákar höfðu mikla yfirburði í leiknum og sýndu oft á tíðum góða takta.  Lokatölur voru 11:2 sem segir allt sem segja þarf.  Gott spil var í liðinu og varnarvinnan þétt.  Gestirnir fengu fá færi en mörk Hamars/Ægis hefðu hæglega getað orðið fleiri.
Þeir sem skoruðu mörk liðsins voru Pálmi (5), Fannar (2), Þorkell, Haukur, Bjarni og Þorlákur.


Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur karla/DSC00078_thumb.JPG