Um lagið

Þegar ég valdi stílinn og stefnuna fyrir lagið var markmiðið að búa til kraftmikið og tímalaust stuðningslag sem gæti lifað lengi meðal stuðningsmanna Ægis. Ég sótti innblástur í íslenska og írska þjóðlaga- og sjómannatónlist sem tengist sterklega strandmenningu og samfélögum sem byggðu líf sitt á sjósókn.

Nafn félagsins vísar til sjávarjötunsins Ægis úr norrænni goðafræði og tengir félagið þannig við hafið og sjómennskuhefðina. Það hafði mikil áhrif á stemninguna og myndmálið í laginu.

Lagið vísar líka til Þorlákshafnar sem sjávarþorps þar sem hafið hefur mótað samfélagið gegnum tíðina. Ég vildi hafa lagið einfalt og auðsyngjanlegt, í anda gamalla sjómannavísna, þannig að margir geti sungið það saman og það geti lifað áfram milli kynslóða stuðningsmanna.

Markmiðið var því ekki bara að semja stuðningslag fyrir leiki heldur líka lag sem fangar sögu, menningu og karakter samfélagsins í Þorlákshöfn.

 

Um textann

Þegar ég skrifaði textann vildi ég halda áfram sömu stemningu og í laginu og tengja hann við hafið, sjósókn og samfélagið í Þorlákshöfn. Í textanum nota ég myndmál eins og „öldugangur“, „efst í húni“ og „sjávarjötunn í stríð“ til að styrkja þá tengingu.

Í lokaerindinu vísa ég líka í veislumenningu tengda Ægi og norrænni goðafræði með línum eins og „þegar veislan er öll“ og „tæmum hornin“. Þar er stuðningsmenning knattspyrnunnar tengd sameiginlegum fagnaðarlátum og samveru eftir leik. Hornið verður þannig bæði goðafræðilegt tákn og sameiningartákn fyrir samfélagið og stuðningsmennina.

Ég lagði líka áherslu á samstöðu sem kemur meðal annars fram í línum eins og „Þetta er fjölskylda“ og „Stöndum saman, hvernig sem fer“. Áherslan er því ekki bara á sigur heldur líka fólkið og samfélagið í kringum félagið.

Þegar ég skrifaði textann horfði ég einnig til þess að lagið gæti talað til allra stuðningsmanna félagsins óháð kyni. Þótt orðið „Ægismenn“ komi fyrir í viðlaginu er það notað í almennri merkingu yfir liðsmenn og stuðningsfólk félagsins. Að öðru leyti er textinn kynlaus og leggur áherslu á heildina og samstöðuna í kringum félagið.

Markmiðið var því að semja lag sem væri ekki bara stuðningslag fyrir fótboltaleiki heldur líka sameiginlegt tákn fyrir Knattspyrnufélagið Ægi, Þorlákshöfn og samfélagið í Ölfusi.

 

Hvað varð til þess að lagið var gert?

Fyrir einhverjum árum síðar var maður sem hafði samband við mig og sagði að það væri nú alveg kominn tími á að gera lag fyrir knattspyrnufélagið. Á þessum tíma var lítið sem kom til mín og sú pæling fjaraði hratt út.

Á síðasta ári var ég með strákana mína á Norðurálsmótinu í fótbolta og sá þar öll liðin með ferðahátalara að spila stuðningslögin sín. Ég hugsaði með mér að það gengi ekki að Ægir væri eina liðið sem ekki hefði lag svo ég sendi pælingar á Össa sem að leyst mjög vel á hugmyndina. Boltinn var svo ekkert tekinn lengra fyrr en núna í mars þegar Kristín Magnúsdóttir og Kolbrún Rakel höfðu samband fyrir hönd barna- og unglingaráðs Ægis.

Í ágúst í fyrra fékk barna- og unglingaráð Ægis veglega gjöf frá minningarmóti Gunnars Jóns Guðmundssonar upp á 1.000.000 kr. Tekin var ákvörðun um að setja peningana í eitthvað sem myndi lifa og því valið að gera lag fyrir knattspyrnufélagið.

Sjálfur þekkti ég Gunnar Jón ágætlega en bróður hans Guðmund Karl betur en við spiluðum saman fótbolta upp alla yngri flokkana með Ægi. Það er því afskaplega fallegt að vita til þess að Gunnar Jón og hans fjölskylda ásamt barna- og unglingaráði séu að láta þetta lag verða að veruleika.

Lagið er unnið í samvinnu við Bjarka Ómarsson (Eyrarbakka) en hann spilaði inn öll hljóðfæri, sá um hljóðvinnslu og hljóðjöfnun.

Það er mikill heiður að fá að vinna þetta verkefni og ég vona svo innilega að lagið komi til með að lifa og að fólk taki vel í það.

Júlí Heiðar Halldórsson

Myndirnar hér að ofan voru teknar á heimaleik Ægis gegn Leikni Reykjavík þann 5. júní 2026, þegar stuðningslagið Jötuninn rís var frumflutt í fyrsta sinn. Krakkar úr 7. og 8. flokki Ægis leiddu liðsmenn inn á völlinn og tóku þátt í stund sem verður hluti af sögu félagsins. Þrátt fyrir erfið úrslit á vellinum var boðskapur lagsins skýr – að standa saman og styðja hvert annað, hvernig sem fer. 💛🖤

Jötuninn rís (Ægismenn)
Lag og texti: Júlí Heiðar Halldórsson
Framleiðsla og meðhöfundur lags: Bjarki Ómarsson

Suður’á ströndum úr Skötubót jötunninn rís.
Sjálfur konungur hafsins sem í Þorlákshöfn býr.
Gegnum öldugang lið hafa lagt sína för
en þær ógöngur skilja’eftir ör.

Efst í húni nú blaktir hann gulur og hlýr.
Þetta er fáninn sem leiðir sjávarjötunn í stríð
Núna flykkjast á völlinn til að fylgjast með dáð
horf’á liðið sitt bardaga há.

Ægismenn, Ægismenn, syngjum nú öll.
Stolt stöndum gulklædd í sókn sem og vörn.
Ægismenn, Ægismenn, skorum nú mörk.
Hjartað það slær fyrir félagið frá Þorlákshöfn.

Þegar kvöldsólin lýsir upp leikvanginn minn.
Þegar söngvarnir óma gengur liðið mitt inn.
Þetta er fjölskylda, heild, þetta’er bæjarins prýð
þetta er Ægir mitt knattspyrnulið.

Ægismenn, Ægismenn, syngjum nú öll.
Stolt stöndum gulklædd í sókn sem og vörn.
Ægismenn, Ægismenn, skorum nú mörk.
Hjartað það slær fyrir félagið frá Þorlákshöfn.

Þegar leiknum er lokið, þegar veislan er öll.
Tæmum hornin og syngjum öll langt fram á kvöld.
Fyrir Ægi, fyrir Ölfus, fyrir fólkið mitt hér.
Stöndum saman, hvernig sem fer.