6. flokkur kvenna og karla spiluðu í dag í Faxaflóamótinu. Bæði lið léku á Álftanesinu við mjög góðar aðstæður. Lið okkar komust bæði í úrslit. Okkar lið unnu sannfærandi sigra í sínum riðlum. Þess má geta til gamans að samtals fengu liðin aðeins á sig 2 mörk á öllu mótinu, en skoruðu 26 mörk. Til hamingju með árangurinn strákar og stelpur.
Áfram Ægir.
Faxaflóamót -frábær frammistaða
18. maí 2008
| umsjon