Sigur og tap hjá 4. flokk karla

12. maí 2008

| umsjon

Sigur og tap hjá 4. flokk karla

4. flokkur karla lék tvo leiki í síðustu viku.  Fyrst áttu strákarnir leik gegn KFR á Þorlákshafnarvelli síðastliðin miðvikudag.  Ægir hafði talsverða yfirburði í leiknum og áttu ekki í vandræðum með að sigra Rangæinga og voru lokatölur 7:1.  Síðari leikinn spiluðu strákarnir gegn Keflavík á föstudag en þar mættu þeir ofjörlum sínum og töpuðu 7:3.  Þess má þó geta að Keflavík sigraði riðilinn nokkuð öruggt.