Meistaraflokkur karla leikur í kvöld gegn Ými úrslitaleik í Lengjubikar karla C deild. Leikurinn fer fram hér í Þorlákshöfn og hefst kl. 19:00. Þetta er frábær árangur hjá liðinu og því um að gera fyrir alla knattspyrnuáhugamenn að fjölmenna á völlinn og styðja við bakið á strákunum.
Áfram Ægir
Úrslitaleikur Lengjubikarsins í kvöld
9. maí 2008
| umsjon