Foreldrahandbók

i 3 Efnisyfirlit | Foreldrahandbók

FORELDRAHANDBÓK

Knattspyrnufélagið Ægir |  Barna og unglingastarf

PDF ÚTGÁFA – SÆKJA   

 

Inngangur

 

Foreldrahandbók Knattspyrnufélagsins Ægis er leiðarvísir fyrir foreldra og forráðamenn barna sem taka þátt í starfi félagsins, sem og alla þá sem koma að íþróttaiðkun barnsins.
Í handbókinni er að finna upplýsingar sem nýtast í daglegu starfi, við æfingar, leiki, keppnisferðir og samskipti innan félagsins.

Markmið Ægis er að bjóða upp á faglegt, öruggt og uppbyggilegt knattspyrnustarf þar sem vellíðan, virðing og heilbrigður lífsstíll eru í forgrunni. Starfið á að stuðla að jákvæðri upplifun barna og ungmenna og styðja við félagslegan og persónulegan þroska þeirra.

Foreldrahandbókin byggir á gildum íþróttahreyfingarinnar, reglum KSÍ og reynslu af barna- og unglingastarfi.

 

Gildi íþróttastarfs fyrir börn og ungmenni

 

Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi hefur fjölþætt gildi. Íþróttaiðkun styrkir líkamlega heilsu, eflir félagsfærni og hefur jákvæð áhrif á andlega líðan barna og ungmenna.

Með þátttöku í íþróttum læra börn m.a.:

    • samvinnu og virðingu
    • heiðarleika og réttsýni
    • að takast á við sigur og tap
    • að setja sér markmið og vinna markvisst að þeim
    • að fylgja reglum og bera ábyrgð á eigin framkomu

Rannsóknir sýna jafnframt að börn og ungmenni sem stunda íþróttir reglulega eru síður líkleg til að leiðast út í neikvæða hegðun og eru líklegri til að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl.

Ægir leggur ríka áherslu á að allt barna- og unglingastarf sé rekið af fagmennsku, gleði og virðingu fyrir einstaklingnum.

Skipulag barna- og unglingastarfs Ægis

Barna- og unglingaráð Ægis

Barna- og unglingaráð Ægis hefur yfirumsjón með skipulagi og framkvæmd barna- og unglingastarfs félagsins.

Í verkahring ráðsins er m.a. að:

    • móta stefnu í barna- og unglingastarfi
    • sjá um skipulag æfinga og keppna í samstarfi við þjálfara
    • halda utan um foreldrasamstarf og foreldrafundi
    • veita þjálfurum aðhald og stuðning
    • hafa yfirumsjón með fjáröflunum og umgjörð yngri flokka.

Stjórnarmeðlimi barna- og unglingaráðs má finna á heimasíðu Ægis:
https://aegirfc.is/yngri-flokkar/barna-og-unglingarad-aegis/

 

Yfirþjálfari barna- og unglingastarfs

Yfirþjálfari er faglegur ábyrgðaraðili þjálfunar og tengiliður milli barna- og unglingaráðs og þjálfara.

Helstu verkefni yfirþjálfara eru m.a.:

    • yfirumsjón með starfi þjálfara
    • stuðningur og leiðsögn til þjálfara
    • samræming þjálfunarstefnu Ægis
    • samskipti við foreldra vegna stærri mála eða aga mála
    • að tryggja að starfið sé í samræmi við stefnu KSÍ og gildi Ægis

Yfirþjálfari:
Torfi Hjörvar Björnsson

 

Hlutverk þjálfara

Þjálfarar bera faglega ábyrgð á þeim flokkum sem þeir þjálfa.
Hlutverk þeirra er ekki aðeins að kenna knattspyrnu heldur einnig að skapa öruggt, uppbyggilegt og hvetjandi umhverfi.

Í hlutverki þjálfara felst m.a. að:

    • skipuleggja og stjórna æfingum og leikjum
    • skapa jákvæðan og heilbrigðan félagsanda
    • veita iðkendum verkefni við hæfi
    • fylgja aga- og siðareglum Ægis og KSÍ
    • vera góð fyrirmynd í framkomu og samskiptum
    • halda utan um mætingar og upplýsingaflæði til foreldra

Þjálfarar skulu ávallt leggja áherslu á öryggi, virðingu og vellíðan iðkenda.

 

Iðkendur Ægis

Iðkendur í barna- og unglingastarfi Ægis eiga að fá tækifæri til að blómstra í öruggu og jákvæðu umhverfi.

Ægir leggur áherslu á að iðkendur:

    • geri sitt besta á eigin forsendum
    • sýni samherjum, mótherjum, dómurum og þjálfurum virðingu
    • fari eftir reglum félagsins og keppnisreglum KSÍ
    • forðist neikvætt tal, einelti eða óæskilega hegðun
    • mæti stundvíslega á æfingar og leiki

Eldri iðkendur bera aukna ábyrgð á framkomu sinni og eru hvattir til að vera fyrirmynd yngri iðkenda, bæði innan vallar sem utan.

 

Foreldrar og forráðamenn | Lykilhlutverk í starfinu

Foreldrar gegna lykilhlutverki í íþróttaiðkun barna sinna.
Jákvætt samstarf foreldra, þjálfara og félags skapar forsendur fyrir góðri upplifun barnsins.

Ægir hvetur foreldra til að:

    • sýna börnum sínum jákvæðan stuðning og hvatningu
    • leggja áherslu á ánægju og þátttöku fremur en úrslit
    • virða hlutverk þjálfara og dómara
    • forðast gagnrýni eða neikvæð ummæli á meðan leikjum stendur
    • vera góðar fyrirmyndir í framkomu og samskiptum

Foreldrar eru hvattir til að taka þátt í starfi félagsins eftir því sem kostur er, m.a. við mótshöld, fjáraflanir og félagsstarf flokka.

Skráning, æfingagjöld og upplýsingamiðlun

Skráning iðkenda

Skráning í knattspyrnustarf Ægis fer fram í gegnum Abler.

Skráningartengill:
https://www.abler.io/shop/kfaegir

Æfingagjöld

Upplýsingar um æfingagjöld, greiðslufyrirkomulag og afslætti eru birtar á heimasíðu Ægis og í Abler.

 

Samskipti, fræðsla og forvarnir

Ægir leggur ríka áherslu á fræðslu og forvarnir í öllu starfi félagsins.
Félagið hefur núllþol gagnvart:

    • einelti
    • kynferðislegri áreitni
    • andlegu eða líkamlegu ofbeldi
    • neyslu vímuefna í tengslum við íþróttastarf

Í öllum slíkum málum er fylgt skýru verklagi í samræmi við leiðbeiningar ÍSÍ og KSÍ.

Foreldrar og iðkendur eru hvattir til að kynna sér sérstaklega síðuna Fræðsla og forvarnir á heimasíðu Ægis.

 

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs

Allir sem koma að starfi Ægis geta leitað til samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs vegna mála sem varða:

    • einelti eða samskiptavanda
    • kynferðislega áreitni eða ofbeldi
    • andlega eða líkamlega vanlíðan

Sími: 581-1009 / 839-9100 / 783-9100
Netfang: samskiptaradgjafi@samskiptaradgjafi.is
Vefur: www.samskiptaradgjafi.is

 

Lokaorð

Ægir vill byggja upp sterkt, samheldið og heilbrigt íþróttasamfélag þar sem börn og ungmenni fá að njóta sín á eigin forsendum.
Með sameiginlegu átaki foreldra, þjálfara, sjálfboðaliða og félagsins er hægt að skapa jákvæða upplifun sem nýtist börnum langt út fyrir knattspyrnuvöllinn.