Meistaraflokkur karla á heimaleik gegn Ými í kvöld. Eins og staðan er núna eru okkar menn í fjórða sæti með 19 stig en Ýmir í þriðja sæti með 20 stig. Leikurinn í kvöld er því gríðarlega mikilvægur en með sigri förum við upp fyrir Ými og verðum aðeins einu stigi á eftir Létti sem er í öðru sæti. Nú er bara að fjölmenna á völlinn og styðja strákana til sigurs.
Áfram Ægir