Meistaraflokkur karla tók á móti Ými á Íslandsmótinu í kvöld. Fyrir leikinn voru gestirnir fyrir ofan Ægi og gátum við með sigri komist upp fyrir þá og í þriðja sæti.
Ægismenn réðu gangi leiksins í fyrri hálfleik án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Nokkur hálffæri litu dagsins ljós en inn vildi boltinn ekki. Ýmismenn náðu að komast yfir á 32. mín. þvert gegn gangi leiksin. Rétt fyrir hálfleik fékk Eyþór sannkallað dauðafæri en skaut í hliðarnetið.
Í síðari hálfleik héldu okkar menn áfram að stjórna leiknum en náðu ekki að reka endahnútinn á sóknirnar. það voru hins vegar gestirnir sem bættu við marki á 81. mín. og útlitið orðið heldur dökkt. En strákarnir brotnuðu ekki við mótlætið og sóttu af krafti síðustu mínúturnar. Á 85. mín. uppskáru þeir laun erfiðisins þegar Alli þjálfari skoraði laglegt skallamark. Sók Ægismanna hélt áfram að þyngjast og Aco jafnaði síðan leikinn á 89. mín. Það sem eftir lifði leiks sóttu okkar menn stíft að marki gestanna og voru nálægt því að landa sigri er Eyþór skaut rétt framhjá. En leiknum lauk með jafntefli 2:2 eftir dramatískar lokamínútur.