Þorlákshafnar guttinn Svavar Berg Jóhannsson varð í dag Norðurlandameistari með U17 landsliði Íslands. Liðið vann Dani 1:0 í úrslitaleik sem fór fram í dag á Akureyri. Svavar sem spilað hefur með Ægi upp alla yngri flokka en leikur nú með 3. flokk Selfoss hefur komið við sögu í flestum leikjum liðsins og kom inná í dag á 74. mín.
Við óskum Svavari til hamingju með þennan frábæra árangur og að sjálfsögðu liðinu öllu.
Áfram Ísland
Image URL: /upload/images/Ýmislegt/index_thumb.jpg