Mikið er um að vera hjá Ægi á knattspyrnuvöllunum um helgina.
Meistaraflokkur karla leikur gegn Berserkjum á Víkingsvelli á morgun og hefst leikurinn kl. 14:00.
Stelpurnar í 6. flokk kvenna eru að leika í úrslitakeppni Hnátumóts KSÍ og er mótið spilað í Grindavík. Það verður gaman að fylgjast með hvernig stelpunum gengur í mótinu.
Strákarnir í 7 manna liði 4. flokks karla leika síðan gegn Keflavík á laugardaginn og fer leikurinn fram í Keflavík kl. 12:00. Þetta er hreinn úrslitaleikur í mótinu og með sigri verða strákarnir Íslandsmeistarar í 4. flokki karla 7 manna.
Stór helgi framundan hjá Ægi
15. ágú 2008
| umsjon