Grátlegt tap gegn toppliði Berserkja

18. ágú 2008

| umsjon

Grátlegt tap gegn toppliði Berserkja

Meistaraflokkur karla lék gegn Berserkjum á laugardaginn og fór leikurinn fram á Víkingsvelli.  Leikurinn fór vel af stað því Sæli skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu eftir góða stungusendingu frá Sjonna.  Heimamenn jöfnuðu síðan leikinn á 30. mínútu og staðan 1:1 í hálfleik.  Síðari hálfleikur var jafn eins og sá fyrri en Berserkir komust yfir á 50. mínútu nokkuð gegn gangi leiksins.  En með mikilli baráttu jöfnuðum við leikinn þegar Guðni skorði gott mark á 76. mínútu.  Það sem eftir lifði leiks voru Ægismenn heldur líklegri að bæta við marki en á 89. mínútu áttu Berserkir góða sókn og skoruðu sigurmarkið og niðurstaðan því grátlegt tap 3:2.

Síðasti leikur sumarsins verður laugardaginn 23. ágúst og er það heimaleikur gegn Árborg.  Leikurinn hefst kl. 14:00.