Öruggur sigur meistaraflokks gegn Kára

20. apr 2013

| Garðar

Öruggur sigur meistaraflokks gegn Kára

4 nýir leikmennMeistaraflokkur karla lék sinn síðasta leik í Lengjubikarnum þetta tímabilið gegn Kára í dag.  Strákarnir unnu nokkuð öruggan sigur 2:0.

Samkvæmt Júlla aðstoðarþjálfara var spilamennskan þokkaleg í fyrri hálfleik en hefði getað verið betri í þeim síðari.  Liðið fékk nokkur færi til að bæta við mörkum en náði ekki að nýta þau.

Það voru þeir Mateja (fyrri hálfleik) og Magnús Helgi (síðari hálfleik) sem skoruðu mörk Ægis.