Lið meistaraflokks karla lék í gærkvöldi gegn utandeildarliði Elliða í Visabikarnum. Leikurinn fór fram á Þorlákshafnarvelli í rigningarúða.
Ekki fóru Ægismenn vel af stað því gestirnir skoruðu fyrsta mark leiksins á 2. mín. Eftir það tóku okkar menn öll völd á vellinum og sköpuðu sér nokkur færi en inn vildi boltinn ekki.
Í síðari hálfleik var það sama uppá teningnum, Ægir sótti án afláts en gestirnir vörðust af krafti. Atli setti boltann yfir í fínu færi á markteig og Sæli átti góðan skalla af stuttu færi sem fór rétt yfir. En það voru gestirnir sem bættu við öðru marki á 82. mín. og vonir um áframhald í bikarkeppninni orðnar litlar. Danislav náði að minnka muninn á 86. mín. eftir mikla baráttu fyrir framan markið en þar við sat og niðurstaðan 1:2 fyrir gestina.
Næsti leikur meistaraflokks er á föstudag gegn KV og hefst hann kl. 20:00 á Þorlákshafnarvelli.
Meistaraflokkur karla úr leik í Visabikarnum
27. maí 2008
| umsjon