Lokahóf 4.Flokks Hamar/Ægis 2007 – 2008.
Vetrarstarfið fór vel af stað,við byrjuðum með 26.leikmenn í hópnum sem síðan fór niður í 23 og hélst þannig til loka tímabilsins, fyrsta mótið var HSK-mótið þar sem okkur gekk mjög vel og sigrðum mótið.Síðan hófst fyrra Faxaflóamótið þar sem við vorum í öðru sæti í okkar riðli, þá var komið að seinna Faxaflóamótinu þar sem við urðum í þriðja sæti í okkar riðli.
Í Mai hófst svo keppni á Íslandsmótinu og forum við mjög vel af stað í því. Í lok Júlí tókum við þátt í Alþjóðlegu móti Rey-Cup sem haldið var í Reykjavík, okkur gekk mjög vel á því móti og unnum það í okkar riðli. Aftur að Íslandsmótinu,þar unnum við okkar riðil með glæsibrag og komumst þar af leiðandi í úrslitakeppnina þar sem við mættum bestu liðum landsins og stóðum okkur ágætlega þó ekki hafi náðst sigur. Ég vil lýsa yfir ánægju minni með þessa stráka sem hafa verið félögunum sínum til þvílíks soma hvar sem liðið hefur komið á tímabilinu hvort sem um er að ræða í gistingu eða í styttri stoppum. Ég er ákaflega stolltur af þessum strákum og vil hvetja þá til að halda áfram af fullum krafti því vissulega býr mikið efni í þessum hóp sem vonandi á eftir að skila sér upp í meistaraflokk seinna meir. Að lokum vil ég greina frá því að sökum vinnu minnar þá get ég ekki stundað þjálfun á næsta ári sem er mikill söknuður fyrir mig því ég hef haft virkilega gaman af að starfa með þessum strákum í sumar. Að lokum vil ég þakka öllum í stjórn bæði hjá Hamar og hjá Ægi fyrir gott samstarf og öðrum þeim sem hafa hjálpað okkur að ná þessu glæsilega árangri. Takk fyrir mig, sjáumst örugglega síðar.Kveðja Ásgeir.
- Besta mæting : Guðmundur Friðriksson og Svavar Berg Jóhannsson.
- Mestu framfarir: Friðrik Emilsson og Fannar Davíðsson.
- Besti leikmaður: Guðmundur Friðriksson.