Jötuninn rís – Ægir hefur eignast sitt eigið stuðningslag

7. jún 2026

| sös

Jötuninn rís – Ægir hefur eignast sitt eigið stuðningslag

Nýtt stuðningslag Knattspyrnufélagsins Ægis, Jötuninn rís (Ægismenn), var frumflutt á heimaleik félagsins gegn Leikni Reykjavík þann 5. júní.

Lagið er samið og flutt af Júlí Heiðari Halldórssyni, fyrrverandi leikmanni Ægis, og varð til með stuðningi frá Minningarsjóði Gunnars Jóns Guðmundssonar. Markmiðið var að skapa lag sem gæti fylgt félaginu um ókomin ár og sameinað leikmenn, stuðningsmenn og samfélagið í kringum Ægi.

Á sérstökum upplýsingavef um lagið má lesa söguna á bak við verkefnið, skoða myndir frá frumflutningnum, hlusta á lagið í heild sinni og lesa textann.

Lesa söguna á bak við Jötuninn rís hér.