Jafntefli gegn toppliði KV í kvöld

26. júl 2013

| Garðar

Jafntefli gegn toppliði KV í kvöld

WP_20130627_001Meistaraflokkur karla lék gegn KV á KR-velli í kvöld. Fyrir leikinn var staða liðanna í töflunni ólík en það sást ekki á vellinum í kvöld.

Ægir komst yfir strax á 6.mínútu með marki frá Jóhanni Óla Þórbjörnssyni. Eftir það var jafnræði með liðunum, KV meira með boltann en vörn okkar manna þétt.

Í síðari hálfleik voru Ægismenn þéttir og héldu KV vel í skefjum. Um miðbik hálfleiksins fengu okkar menn nokkur mjög góð færi en lukkan var ekki með að þessu sinni. Undir lokin sóttu KV að krafti en vörn okkar hélt vel til loka. Niðurstaðan var því 1:1 jafntefli.