Jafntefli gegn Hetti

21. júl 2013

| Garðar

Jafntefli gegn Hetti

Meistaraflokkur tók á móti Hetti á Þorlákshafnarvelli í gær.  Fyrir leikinn sátu gestirnir á botninum en við í 9. sæti.

Ekki var að sjá að botnliðið væri í heimsókn því þeir stjórnuðu leiknum lengst af og náði miðja okkar lítið að stoppa spil þeirra.  Hattarmenn náðu þó lítið að skapa  sér færi sem var vel.  Hin vegar komst Ægir yfir á 17. mínútu þegar Matejic skoraði eftir laglega sendingu frá Arilíusi.

Í síðari hálfleik héldu gestirnir áfram að stjórna leiknum en okkar menn héldu áfram að safna spjöldum.  Á 60. mínútu jafnaði Höttur síðan leikinn.  Það sem eftir lifði leiks hresstust okkar menn aðeins og sköpuðu sér nokkur hálffæri en inn vildi boltinn ekki.  Matejic fékk síðan sitt annað gula spjald undir lok leiksins og verður því í banni í næsta leik.  Niðurstaðan því 1:1 jafntefli sem verða að teljaast vonbrigði.

Næsti leikur er útileikur gegn KV sem fer fram næstkomandi föstudag kl. 20:00.WP_20130627_001