Háspenna hjá meistaraflokk

12. júl 2007

| umsjon

Háspenna hjá meistaraflokk

Meistaraflokkur karla lék í kvöld gegn toppliði Gróttu.  Leikurinn var fjörugur og spennandi og var fín skemmtun fyrir áhorfendur.   Gestirnir mættu ákveðnir til leiks og skoruðu sitt fyrsta mark strax á 4 mín.  Ársæll Jónsson náði síðan að jafna leikinn á 25 mín.  og hélst sú staða fram að hálfleik.
Í síðari hálfleik byrjuðu Gróttu menn af sama krafti og í upphafi leiks og komust yfir á 48 mín.  En það var síðan Sæli sem jafnaði leikinn af harðfylgi á 56. mín með sínu öðru marki í leiknum.  Ekki voru skoruð fleiri mörk og lauk leiknum því með jafntefli 2:2.
Næsti leikur hjá meistaraflokk er gegn KB á Leiknisvelli fimmtudaginn 19. júlí.