Meistaraflokkur karla lék sinn annan leik í lengjubikarnum á sunnudaginn. Leikurinn fór fram í knattspyrnuhúsinu Kórnum og voru andstæðingarnir Hvíti Riddarinn. Leikurinn fór ekki vel af stað því HR skoraði fyrsta mark leiksins á 4. mínútu eftir mistök okkar manna. Ægir náði fljótlega góðum tökum á leiknum en náðu ekki að skora fyrr en á 37. mínútu þegar Guðni skoraði fyrsta mark okkar mann. Sæli bætti síðan við öðru marki rétt fyrir leikhlé.
Ægir hafði talsverða yfirburði í síðari hálfleik. Gunnar Valberg bætti við marki á 70. mínútu og það var síðan Sæli sem skoraði sitt annað mark í leiknum og fjórða mark Ægis á 88. mínútu. Góður sigur hjá okkar mönnum og góður gangur í Lengjubikarnum. Næsti leikur liðsins er laugardaginn 19. apríl gegn Snerti og er hann leikinn á Gróttuvelli. Leikurinn hefst kl. 16:00.
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/Sæli og Gísli teygja_thumb.JPG