Meistaraflokkur karla lék í kvöld æfingaleik gegn Stjörnunni úr Garðarbæ. Ljóst var að erfitt verkefni var fyrir höndum enda Stjarnan okkum deildum ofar.
Stjarnan réð gangi leiksins í fyrri hálfleik undan nokkuð sterkum vindi. Ægismenn beittu skyndisóknum sem voru margar mjög góðar og uppskáru m.a. víti en Luc setti boltann framhjá. Stjarnan kom boltanum tvisvar í mark okkar manna og staðan 0:2 í hálfleik.
Í síðari hálfleik var meiri ró yfir leik Ægis og hélt liðið boltanum oft mjög vel. Milan minnkaði muninn eftir góða fyrirgjöf frá Kela. Stjörnumenn komust svo aftur tveimur mörkum yfir gegn gangi leiksins. Milan minnkaði svo aftur muninn úr víti og lauk leiknum með 2:3 sigri Stjörnunnar.
Í heildina var leikur liðsins góður og þá sérstaklega í síðari hálfleik. Það verður gaman að sjá strákana í sínum fyrsta alvöru leik gegn KV á sunnudag.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Alla þjálfara fara yfir málin með leikmönnum í hálfleik.
Image URL: /upload/images/Mfl. karla 2011/CIMG1852_thumb.JPG