Frábær sigur Ægis á toppliði HK

5. sep 2013

| Garðar

Frábær sigur Ægis á toppliði HK

Ægismenn fengu topplið HK í heimsókn á Þorlákshafnarvölli í dag.  Fyrir leikinn voru okkar menn í 10. sæti með 20 stig og aðeins 4 stig í fallsæti.

Það var ekki að sjá að liðin sem mættust í kvöld væru í sitt hvorum enda stigatöflunnar.  Ægisliðið virkaði þétt og sóknirnar beittar.

Matejic opnaði markareikning sinn á 24. mínútu þegar hann skorðaði laglegt skallamark og aðeins 4 mínútum síðar bætti Haukur Már við öðru marki Ægis og staðan ansi vænlegt.  Eftir þetta bættu gestirnir í og voru ansi hættulegir fram að hálfleik.  Á 41. mínútu minnkaði Tryggvi Guðmundsson muninn og staðan því 2:1 í hálfleik.

Ræða Alla í hálfleik hefur verið góð því Ægisliðið mætti ákveðið til síðari hálfleiks og stoppaði í öll göt sem voru komin í varnarleik liðsins í fyrri hálfleik.  Menn voru að berjast í alls staðar á vellinum og gestirnir komust lítið áfram.  Sóknirnar voru áfram hættulegar og Matejic kom okkur í ansi þægilega stöðu með sínu öðru marki á 59. mínútu.  Hann fullkomnaði svo þrennuna með marki eftir glæsilega sókn liðsins á 76. mínútu.  Eftir þetta dróg liðið sig aðeins til baka en HK náðu aðeins að bæta við einu marki og niðurstaðan því glæsilegur 4:2 sigur.

Höttur tapaði sínum leik í kvöld og því er munurinn á liðunum 7 stig og aðeins 2 umferðir eftir. En það er óþarfi að stoppa núna því næsti leikur er síðasti heimaleikur sumarsins gegn Njarðvík laugardaginn 14. september og með sigri í honum getum við fikrað okkur ofar í töfluna.

Strákarnir fögnuðu vel eftir góðan sigur í kvöld.

Strákarnir fögnuðu vel eftir góðan sigur í kvöld.