Fjöldi marka á Þorlákshafnarvelli í gær

13. júl 2012

| Garðar

Fjöldi marka á Þorlákshafnarvelli í gær

Það fóru fram þrír leikir hjá 4. flokki karla og kvenna á Þorlákshafnarvelli í gær.  4. flokkur kvenna hóf leik en þær mættu sterku liði FH sem vann leikinn 1:6.  Okkar stelpur áttu þrátt fyrir það nokkuð góð færi til að setja fleiri mörk og sýndu oft lipra spretti.  Næsti leikur var viðureign A-liðs 4. flokks karla gegn ÍA en það var jafn og spennandi leikur sem fór 2:2 en strákarnir sýndu mikinn karakter eftir að hafa lent 0:2 undir.  Að lokum lék B-lið 4. flokks karla gegn ÍA en eftir góðan fyrri hálfleik þar sem staðan var 1:1 datt botninn aðeins úr leik liðsins og þeir máttu sætta sig við 1:6 tap.  En það var nóg um að vera á grasinu í gær og þeir sem kíktu á völlinn fengu að sjá fína

nn fótbolta.