Það er nóg að gera hjá liðum Ægis þessa vikuna. T.d. leikur 5. flokkur karla gegn Hamri í Hveragerði í dag, meistaraflokkur karla og 5. flokkur kvenna leika á morgun og bæði 3. og 4. flokkur karla leika á miðvikudag. Síðan eiga 5. flokkur kvenna og 4. flokkur karla leiki á föstudag. Það er því ljóst að það verður nóg að gera hjá félaginu alla vikuna.
Á myndinni hér til hliðar má sjá stelpurnar í 5. og 6. flokk á æfingu í dag en þær eiga einmitt útileik gegn Selfossi á morgun.
Image URL: /aegirfc/upload/images/5. flokkur kvenna/æfing stelpur2_thumb.JPG