Góður sigur hjá meistaraflokk

11. ágú 2007

| umsjon

Góður sigur hjá meistaraflokk

Meistaraflokkur Ægis fékk lið Ýmis í heimsókn á Þorlákshafnarvöll í gærkvöldi.  Leikurinn fór fram við bestu aðstæður, völlurinn góður og veðrið frábært til knattspyrnuiðkunar.
Fyrri hálfleikur var markalaus þó bæði lið næðu að skapa sér nokkuð af færum, okkar menn fengu þó fleiri opin færi og hefðu hæglega getað verið komnir í 2:0 í hálfleik en inn vildi boltinn ekki.  Staðan í hálfleik var því 0:0.  Í síðari hálfleik komu mörkin á færibandi.  Dalibor opnaði markareikninginn með góðir afgreiðslu á 47. mín.  Í kjölfarið kom mark frá Junior en gestirnir minnkuðu muninn á 67 mín. með glæsilegri aukasyrnu sem Hlynur náði ekki að verja.  Á 79. mín. bætti Ársæll Jónsson síðan við þriðja markinu með glæsilegum skalla og fjórða markið frá Davíð Ragnarssyni kom rétt fyrir leikslok.  Gestirnir bættu síðan við einu marki úr víti áður en dómarinn flautaði til leiksloka.  Niðurstaðan 4:2 sigur í nokkuð góðum leik þar sem okkar menn voru klárlega betri aðilinn.  Næsti leikur meistaraflokks er gegn KFR á þriðjudag og fer hann fram á Þorlákhafnarvelli.

Hér við hliðina má sjá Ársæl markaskorara og Gísla varnarjaxl teygja á eftir góða æfingu.


Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/Sæli og Gísli teygja_thumb.JPG