Til knattspyrnuveislu var boðað hér í gær. Til leiks mættu ÍR, Selfoss og heimamenn. Mótið gekk mjög vel, en það voru veðurguðirnir sem settu smá strik í reikninginn. Leikmenn voru blautir og kaldir, því varð spilatími ekki eins mikill og ráðgert hafði verið. Eftir fótboltann var farið og grillað við Íþróttamiðstöðina og eftir grillið var farið í sundlaugina. Þar sem leikmenn náðu fljótlega upp aftur eðililegu hitastigi í kroppinn. Bestu þakkir fá foreldrar, dómarar og aðrir sem lögðu sitt af mörkum til að gera mótið mögulegt. Með þeirri aðstöðu sem við höfum hér í boði, þá eigum við að keyra á það halda smærri og stærri mót hér í bæ.
Áfram Ægir
Image URL: /aegirfc/upload/images/6.flokkur kk/PICT0585_thumb.JPG