B-lið 3. flokks karla hefur staðið sig vel í sumar. Strákarnir unnu sinn riðil með talsverðum yfirburðum og töpuðu ekki leik. Þeir eru komnir í úrslit Íslandsmótsins og mæta Breiðablik miðvikudaginn 11. september. Það verður gaman að sjá hvernig strákunum gengur Blikum. Leikvöllur er enn óákveðinn.
B-lið 3. flokks karla í úrslit
8. sep 2013
| Garðar