Yngri flokkar Ægis á ferð og flugi á morgun, föstudag

Það verður nóg að gera hjá yngri flokkum Ægis á morgun.  5. flokkur karla fer í Borgarnes að spila við Skallagrím.  4. flokkur karla fer alla leið á Ísafjörð.  4. flokkur kvenna á heimaleik á Selfossi gegn ÍA.  Síðan á 3. flokkur karla leik gegn FH á útivelli. Hægt er...

Leikur hjá Oldboys í kvöld

Strákarnir í Oldboys spila sinn annan leik á Íslandsmótinu í kvöld.  Að þessu sinni er það útileikur gegn Breiðablik.  Leikurinn hefst kl. 20:00 í Fífuni.

Nýir leikmenn meistaraflokks – Magnús Karl

Við höldum áfram að kynna nýja leikmenn meistaraflokks. Næstur í röðinni er nýji markmaðurinn okkar……….við spurðum hann spjörunum úr. Hvað heitir kappinn og hvað er hann gamall? Magnús Karl Pétursson og er 32. ára. Hvaðan ertu? Garðabæ. Með hvaða...

Blikar ógnarsterkir í Oldboys keppninni

Oldboys héldu í Kópavog í kvöld og öttu kappi við Blika.  Það er skemmst frá að segja að Breiðablik vann leikinn enda voru þeir með valinn mann í hverri stöðu og ansi sterkir þetta sumarið.  Ægismenn eru þrátt fyrir tapið brattir og stefna að sjálfsögðu á sigur í...

Góð byrjun hjá 3. flokk karla

Sameiginlegt lið Selfoss/Ægis í 3. flokk karla lék sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu þetta sumarið á laugardag.  Sindri frá Hornafirði kom í heimsókn og var leikið á Selfossvelli. Það er skemmst frá að segja að okkar menn unnu stórsigur 9:0.  Vonandi verður áframhald á...