by umsjon | jún 12, 2012 | Fréttir
Fótboltaskólinn fyrir 6. og 7. flokk fer vel af stað. Um 30 börn æfa mánudaga til fimmtudaga frá 10:00 – 12:00. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er vel tekið á og allir í miklu stuði.
by umsjon | jún 12, 2012 | Fréttir
A og B lið 3. flokk léku bæði í gær. A liðið átti góðan dag og vann góðan sigur á Leikni í Breiðholtinu en B liðið var ekki í sínu besta formi en þeir máttu þola 2:8 tap gegn Gróttu en sá leikur var einnig á útivellli.
by umsjon | jún 11, 2012 | Fréttir
Meistaraflokkur tók á móti Létti á Þorlákshafnarvelli í kvöld. Strákarnir fóru ágætlega af stað og uppskáru mark frá Magnúsi Helga strax á 6. mín. Eftir það hresstust gestirnir héldu boltanum vel og fengu ansi mikinn frið til að spila boltanum á milli sín. Ægismenn...
by umsjon | jún 11, 2012 | Fréttir
Meistaraflokkur karla tekur á móti liði Léttis á Þorlákshafnarvelli í dag. Leikurinn hefst kl. 20:00. Nú mætum við öll á völlinn og hvetjum okkar menn til sigurs. ÁFRAM ÆGIR!
by umsjon | jún 10, 2012 | Fréttir
Á morgun byrjar formlega sumardagskrá hjá Ægi. Morgunæfingar hefjast hjá 5. flokk og 6. og 7. flokkur byrja í knattspyrnuskólanum sem er á morgnana frá 10:00 – 12:00. Einnig byrjar Gyða Steina með útiæfingar fyrir 8. flokk en þær verða á mánudögum og...