4. flokkur kvenna lék sinn annan leik á faxaflóamótinu geng HK á laugardag. HK er með gríðarsterkt lið og lágu okkar stúlkur í vörn megnið af leiknum. Við fengum þó ágætis færi til að jafan leikinn í stöðunni 1:0 og en inn vildi boltinn ekki. Leikurinn endaði 4:0 fyrir HK sem er þó framför frá síðasta leik.
Næstu tveir leikir hjá stelpunum eru gegn Selfoss og Álftanesi og eru þar á ferðinni samkeppnishæfari mótherjar.
Image URL: /aegirfc/upload/images/Fyrstu sameiginlegu æfingar/Fyrstu sameiginlegu æfing 002_thumb.jpg