Ægismenn fengu nágranna sína úr Heimaey, KFS í heimsókn í gærkvöldi. Það má segja að tölvuvert jafnræði hafi verið með liðunum. Liðin skiptust á að sækja og ef eitthvað er þá fengu gestirnir hættulegri færi í fyrrihálfleik. Fyrrihálfleikur var markalaus, en um miðjan seinnihálfleik komust KFS yfir 1 – 0. Það virtist ætla að fara svo að þeir færu í burtu með öll stigin. Undir lok leiksins þegar um 2 mín. voru eftir að venjulegum leiktíma tókst heimamönnum að jafna leikinn með laglegu marki frá Guðni Þór eftir góða sendingu frá Danislav inná teiginn og lokatölur 1 -1.
Þegar á heildina er litið verða það líklegast að teljast sanngjörn úrslit.
Það er ljóst að við verðum að gera betur ef við ætlum að blanda okkur í baráttuna um laust sæti í úrslitakeppninni.
Áfram Ægir.
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0079_thumb.JPG