Meistaraflokkur karla lék í kvöld gegn KV og fór leikurinn fram á gervigrasvelli KR. Ægismenn náðu fljótlega undirtökum í leiknum og stjórnuðu honum án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Staðan var því 0:0 í hálfleik.
Í síðarihálfleik hélt Ægir áfram að sækja en það voru heimamenn sem skoruðu fyrsta markið gegn gangi leiksins um miðjan hálfleikinn. Eftir það reyndu hertu Ægismenn á sókninni og fengu nokkur góð hálffæri en inn vildi boltinn ekki. Það voru síðan heimamenn sem bættu við öðru marki undir lok leiksins með laglegu marki úr aukaspyrnu. Leiknum lauk því með sigri KV 2:0.
Næsti leikur meistaraflokks verður fimmtudaginn 10. júlí gegn KFS á Þorlákshafnarvelli.
Tap hjá meistaraflokk í vesturbænum
5. júl 2008
| umsjon