Annar sigurinn í röð hjá 4. flokk kvenna

25. jún 2008

| umsjon

Annar sigurinn í röð hjá 4. flokk kvenna

4. flokkur kvenna lék á mánudaginn gegn Skallagrím á Íslandsmótinu og fór leikurinn fram í Borgarnesi.  Stelpurnar áttu fínan dag og voru að leika mjög vel.  Leiknum lauk með sigri Ægis 5:4 eftir að staðan hafði verið 3:1 í hálfleik.  Það voru Aðalbjörg (2), Guðlaug (2) og Eva sem skoruðu mörk Ægis.