Nágrannar okkar í Árborg komu í heimsókn á laugardaginn og léku gegn meistaraflokk á Íslandsmótinu. Ávallt er mikil spenna þegar þessi lið mætast og var þar engin undantekning núna.
Gestirnir léku undan nokkuð sterkum vindi í fyrrihálfleik og höfðu nokkra yfirburði í framan af. Þeir náðu að skora á 14. og 27. mínútu en bæði mörkin voru af ódýrari gerðinni. Sigurjón náði svo að minnka muninn á 29. en Árborgarmenn bættu við einu marki rétt fyrir hálfleik og því með þægilega stöðu 1:3 þegar síðari hálfleikur hófst.
Heldur hresstust okkar menn í seinni hálfleik og eftir nokkrar tilfæringar inná vellinum hjá Sveinka þá settu okkar menn þrjú mörk á tíu mínútna kafla, Junior á 56. mín, og Gunnar á 59. og 65. Eftir það var leikurinn í járnum en hvorugu liðinu tókst að bæta við marki og góður sigur okkar manna staðreynd.
Liðið er nú í öðru sæti með 9 stig eins og KV en betri markatölu. Næsti leikur liðsins er heimaleikur á föstudag gegn KFR.
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0115_thumb.JPG