4. flokkur kvenna lék gegn Víði/Reyni á Þorlákshafnarvelli í gær. Leikurinn átti að fara fram í dag en var flýtt að ósk gestanna.
Stelpurnar voru ekki alveg vaknaðar í upphafi leiks því gestirnir voru komnir í 0:1 eftir ca. 5. mín. Eftir það jafnaðist leikurinn og liðin sóttu á báða bóga. Ingibjörg náði síðan að jafna stuttu fyrir hálfleik og staðan 1:1 í leikhlé. Síðari hálfleikur var síðan nokkuð jafn en undir lokin setti Eva Lind tvö mörk og góður sigur Ægisstúlkna staðreynd.
Næsti leikur hjá stelpunum er mánudaginn 23. júní gegn Skallagrím á útivelli.
Nokkrar góðar myndir frá leiknum í gær eru komnar á myndavefinn.
Image URL: /aegirfc/upload/images/4. kvenna gegn Víði/DSC_0270_thumb.JPG