Tap hjá meistaraflokk í rokleik í Vestmannaeyjum

7. jún 2008

| umsjon

Tap hjá meistaraflokk í rokleik í Vestmannaeyjum

Meistaraflokkur karla lék gegn KFS í Vestmannaeyjum í dag.  Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru skelfilegar og alveg spurning hvort ekki hefði átt að fresta leiknum.
Ægismenn léku undan sterkum vindi í fyrrihálfleik og náðu að setja tvö mörk snemma.  Það voru Jón Reynir (9. mín.) og Albert (13. mín.) sem skoruðu mörkin.  Eftir mörkin náðu heimamenn að þétta vörnina og stóðust áhlaup okkar manna.  Þeir náðu síðan að minnka muninn á 35. mín.
Í síðari hálfleik höfðu KFS síðan vindinn í bakið og settu tvö skallamörk á 53. og 68. mín.  Ekki náðu okkar menn að svara þessu og lauk leiknum því með sigri heimamanna 3:2.

Næsti leikur meistarflokks er fimmtudaginn 12. júní gegn Berserkjum á Víkingsvelli.


Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0115_thumb.JPG