Sigur og tap hjá 5. flokki karla

4. jún 2008

| umsjon

Sigur og tap hjá 5. flokki karla

A og B lið 5. flokks karla lék í dag gegn Hamri og fóru leikirnir fram í Hveragerði.  A liðið lék fyrri leikinn og höfðu nokkra yfirburði í leiknum.  Eyþór náði forustu fyrir Ægi snemma í leiknum en heimamenn náðu að jafna gegn gangi leiksins.  Eftir það sóttu okkar strákar án afláts en inn vildi boltinn ekki.  Það var ekki fyrr en á síðustu andartökum leiksins að Eyþór skoraði sigurmarkið beint úr horni og 1:2 sigur okkar stráka staðreynd.
B liðið lék einni leikinn.  Hamar komst yfir fljótlega í leiknum en eftir það átti Ægir nokkur góð færi en náðu ekki að jafna.  Eftir að hafa lagt alla áherslu á að jafna gáfu okkar strákar aðeins eftir í lokinn og heimamenn bættu við þremur mörkum.  Leiknum lauk því með 4:0 sigri Hamars.

Næstu leikir 5. flokks eru miðvikudaginn 11. júní gegn Skallagrím og fara þeir fram hér í Þorlákshöfn.


Image URL: /aegirfc/upload/images/5. flokkur karla/5. karla gegn Hamri_thumb.jpg