Góður sigur hjá meistaraflokk karla í fyrsta leik Íslandsmóts

24. maí 2008

| umsjon

Góður sigur hjá meistaraflokk karla í fyrsta leik Íslandsmóts

Meistaraflokkur karla lék sinn fyrsta leik á Íslandsmóti sumarsins í gærkvöldi.  Mótherjinn var lið KFR og fór leikurinn fram á Hvolsvelli.
Ekki fóru okkar menn vel af stað í því heimamenn voru komnir yfir 1:0 eftir 4 mín.  En eftir markið vöknuðu strákarnir og höfðu talsverða yfirburði á vellinum.  En þrátt fyrir nokkur færi og ansi margar hornspyrnur náðu þeir ekki að skora og staðan 1:0 í hálfleik.
Í seinni hálfleik voru Ægismenn sem fyrr sterkari aðilinn á vellinum en það var ekki fyrr en á 62 mín. sem Sæli náði að opna markareikning sinn fyrir sumarið og jafna leikinn.  Það var síðan á 90 mín. sem við fengum vítaspyrnu og Milos skoraði af öryggi.  Leiknum lauk því með góðum sigri 1:2 og þrjú stig í hús.

Næstu leikir liðsins eru bikarleikur á mánudag gegn Elliða og leikur á Íslandsmóti gegn KV á föstudag.  Báðir leikir eru á heimavelli.


Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0115_thumb.JPG


Image URL: Mfl. karla