4. flokkur kvenna lék sinn síðasta leik í faxaflóamótinu á laugardaginn. Leikurinn var gegn Álftanesi og fór fram hér í Þorlákshöfn. Leiknum lauk með sigri gestana 2:4. Þar með endaði liðið í 4. sæti af sjö liðum með 7 stig sem er fínn árangur.
Fyrsti leikur liðsins á Íslandsmóti er síðan næsta þriðjudag gegn HK á útivelli.
Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur kvenna/o2 4.fl.kvenna 2008_thumb.jpg