4. flokkur kvenna lék í gær gegn KFR og fór leikurinn fram hér í Þorlákshöfn. Stúlkurnar byrjuðu ekki vel og var staðan 1:3 í hálfleik fyrir gestina og var það Margrét sem skoraði mark Ægis. Okkar stúlkur voru ekki að spila vel og náðu ekki saman. Í síðari hálfleik snérist taflið við. Liðið spilaði miklu betri vörn og boltinn gekk á milli leikmanna. Eva Lind skoraði 3 mörk og leiknum lauk með sigri Ægis 4:3. Glæsilegt stelpur!!!!!!!!!
Image URL: /aegirfc/upload/images/5. flokkur kvenna/PICT0123_thumb.JPG