Jafntefli hjá meistaraflokk í fyrsta leik lengjubikars

31. mar 2008

| umsjon

Jafntefli hjá meistaraflokk í fyrsta leik lengjubikars

Meistarflokkur karla lék sinn fyrsta leik í lengjubikarnum á laugardag.  Leikið var gegn Hamrarnir/Vinir og fór leikurinn fram á ÍR velli.  Leikurinn fór fjörlega af stað og voru okkar menn búnir að skora tvö mörk eftir 7 mínútur og var Ársæll Jónsson að verki í bæði skiptin.  En eitthvað slökuðu strákarnir á eftir það því andstæðingarnir voru komnir yfir í hálfleik og staðan 3:2 fyrir Hamra/Vinir þegar síðari hálfleikur hófst.  Okkar menn fengu nokkur góð færi í seinni hálfleik en náðu aðeins að bæta við einu marki og lauk leiknum því með jafntefli 3:3.
Næsti leikur Ægis fer fram sunnudaginn 13. apríl og er hann gegn Hvíta Riddaranum.