Tveir æfingaleikir hjá meistaraflokk

4. mar 2008

| umsjon

Tveir æfingaleikir hjá meistaraflokk

Meistaraflokkur karla lék tvo æfingaleiki síðustu helgi.  Fyrri leikurinn var gegn 2. deildar liði Hvatar og fór leikurinn fram á ÍR velli.  Fyrstu 30 mínúturnar voru ágætar en þegar leið á leikinn kom styrkleikamunurinn á liðunum í ljós og lauk leiknum með sigri Hvatar 0:9.
Seinni leikurinn var gegn Skallagrími og var leikið í knattspyrnuhúsinu á Akranesi.  Ægismenn stóðu sig mun betur í þessum leik og lauk honum með sigri okkar mann 4:2.  Ársæll Jónsson skorðaði 1 mark af sinni alkunnu snilld, Milan með 1 og Danislav með 2, en þeir eru báðir leikmenn sem hugsanlega koma til með að leika með liðinu í sumar.

Framundan eru fleiri leikir og er um að gera fyrir alla knattspyrnuáhugamenn að fylgjast með fréttum af þeim hér á heimasíðunni.