5. flokkur karla lék í gær á Íslandsmóti innanhúss og fór mótið fram hér í Þorlákshöfn. Fjögur lið mættu til leiks auk Ægis en það voru ÍBV, KR, Selfoss og Hamar.
Strákarnir okkar áttu mjög gott mót og voru í baráttu um efsta sætið allt fram á síðasta leik. Fyrst léku strákarnir gegn Hamri og unnu auðveldan sigur 4:0. Næstu mótherjar voru ÍBV og endaði sá leikur með jafntefli 0:0 þar sem bæði lið fengu góð færi til að klára leikinn. Næst síðasti leikurinn var gegn Selfoss og vannst það ánægjulegur sigur 1:0 í baráttuleik. Síðasti leikurinn var gegn KR og eftir að hafa verið yfir í hálfleik þá datt baráttan niður hjá strákunum og leikurinn tapaðist 2:5 en þetta var eini leikurinn þar sem liðið fékk á sig mark.
En sem sagt góður árangur hjá strákunum og niðurstaðan 3 sæti.
Hér til hliðar má sjá Ingvar þjálfara fara yfir mótið með strákunum eftir síðasta leik.
Image URL: /aegirfc/upload/images/5. karla íslandsmót inni 2008/HPIM1429_thumb.JPG