Góður sigur í baráttuleik hjá 4. flokki karla

3. des 2007

| umsjon

Góður sigur í baráttuleik hjá 4. flokki karla

Strákarnir í 4. flokk léku á laugardaginn gegn Álftanesi og fór leikurinn fram á Selfossi.  Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og lent okkar strákar t.d. tvisvar undir í 0:1 og 2:3.  En undir lok leiksins höfðu okkar menn þó sigur 4:3 með marki á lokamínútunni.
Það voru Tómas og Pálmi sem skoruðu báðir tvö mörk fyrir liðið í þessum góða sigri.