4. flokkur karla lék gegn Selfossi í faxaflóamótinu nú í kvöld. Leiknum lauk með sigri okkar stráka 6:2 og þeir sem skoruðu mörkin voru Tómas (4), Guðmundur (1) og Bjarni (1).
Ásgeir þjálfari var að vonum ánægður með strákana en hann sagði að það sem þeir hafi verið að vinna með undanfarnar æfingar hafi gengið upp og skilað sér í leikinn. Liðið var að spila nýtt leikkerfi (3:5:2) og gekk það vonum framar. Vel gert strákar.
Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur karla/HPIM1415_thumb.JPG