Aðalfundur

9. nóv 2007

| umsjon

Aðalfundur

Aðalfundur Ægis var haldinn síðastliðinn sunnudag.  Eins og undanfarin ár var mæting ekki góð eða um 12 manns.  Fundurinn var með hefðbundnu sniði fluttar voru skýrslur og kosið í stjórn.  Sturla Geir Pálsson og Guðbjörg Ósk Kjartansdóttir hættu í stjórn en í þeirra stað komu Gestur Áskellsson og Gyða Steina Þorsteinsdóttir.  Við þökkum Sturla og Guðbjörgu fyrir vel unnin störf og bjóðum þau Gest og Gyðu velkomin til starfa.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af fundinum en eftir helgi munum við birta helstu skýrslur og fundargerð fundarins hér á síðunni. 


Image URL: /aegirfc/upload/images/Stjórnarfundur 2007/PICT0588_thumb.jpg


Image URL: Stjórnarfundur 2007