Laugardaginn 3. nóvember komu krakkar úr 6. og 7. flokk af Kjalarnesinu í heimsókn til okkar og spiluðu við okkur. Þar sem það eru ekki margir krakkar sem æfa hjá þeim voru þau með eldri krakka í sínum liðum. Það var erfitt fyrir okkar unga 7. flokk að etja kappi við eldri krakka, en þau stóðu sig frábærlega og héltu all lengi í við gestina. Hjá 6. flokknum höfðum tvo úr 5. flokki með hjá okkur til að styrkja okkar lið, það var hörkuleikur úr því sem við unnum naumlega. En það sem upp úr stendur að allir áttu góðan í ,, nokkuð skaplegu veðri „.
Image URL: /aegirfc/upload/images/7. flokkur kk/PICT0582_thumb.JPG