Tap hjá 4. karla í fyrsta leik

31. okt 2007

| umsjon

Tap hjá 4. karla í fyrsta leik

4. flokkur karla lék sinn fyrsta leik á faxaflóamótinu síðastliðin sunnudag.  Strákarnir léku gegn Breiðablik 2 og fór leikurinn fram í Kópavogi.  Leiknum lauk með sigri heimamanna 5:1 og var Ásgeir þjálfari allt annað en ánægður með úrslitin.  Talsvert vantaði í lið okkar en einnig virtust leikmenn ekki mæta með rétt hugarfar í leikinn eftir gott gengi á HSK mótinu um daginn.
Næsti leikur hjá strákunum er 10. nóvember gegn Álftanesi.