Mikið var að gera hjá yngri flokkum Ægis síðastliðna viku. 6. flokkur karla fór í æfingaferð til Reykjavíkur og spilaði gegn ÍR. Eftir leikina fóru strákarnir síðan á landsleik Íslands og Kanada.
5. flokkur karla fór í heimsókn á Stokkseyri og lék gegn sameiginlegu liði Stokkseyrar og Eyrarbakka.
Að lokum má geta þess að bæði 7. flokkur kvenna og karla fóru á mót um helgina, strákarnir á Álftanesmótið og stelpurnar á Fossvogsmótið. Nánar verður fjallað um þessi mót síðar.
Mikið fjör síðastliðna viku
28. ágú 2007
| umsjon