Leikur hinna glötuðu marktækifæra

21. ágú 2007

| umsjon

Leikur hinna glötuðu marktækifæra

Meistaraflokkur karla lék sinn síðasta leik á Íslandsmótinu á laugardaginn gegn Árborg og fór leikurinn fram á Selfossi.  Jafnræði var með liðunum framan af leik og Ægismenn fengu nokkur góð færi en náðu ekki að nýta þau eins og titill fréttarinnar ber með sér.  Árborgarmenn skoruðu fyrsta markið en Sigurður jafnaði á 27. mín.  Heimamenn bættu síðan einu marki við fyrir leikhlé.  Eins og fyrr segir náðu okkar menn ekki að nýta færi sín og hafði það áhrif á leik liðsins.  Þegar upp var staðið hafði Árborg bætt við tveimur mörkum án þess að Ægir næði að skora.  Leikurinn endaði því 4:1 fyrir Árborg sem var langt frá því að vera sanngjörn úrslit.

Ægir endaði í fjórða sæti riðilsins með 20 stig sem er lang besti árangur liðsins í mörg ár.  Það verður spennandi að fylgjast með liðinu næstu tímabil ef sami kraftur verður á starfinu og var í sumar.


Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/stuffið_thumb.JPG