Góður sigur hjá 5. flokk kvenna

20. ágú 2007

| umsjon

Góður sigur hjá 5. flokk kvenna

5. flokkur kvenna lék á föstudag gegn ÍR og fór leikurinn fram í Þorlákshöfn.  Okkar stelpur byrjuðu af krafti,  skoruðu tvö mörk fyrir leikhlé og hefðu hæglega getað bætt við fleirum.  Í Seinni hálfleik var jafnræði með liðunum þó Ægir væri alltaf lýklegri til að skora.  Að lokum skoruðu bæði lið tvö mörk í hálfleiknum og leikurinn endaði því 4:2 fyrir Ægi.  Liðið á enn eftir að spila gegn BÍ en óvíst er hvenær sá leikur fer fram.

Hér til hliðar má sjá Önnu fara yfir leikskipulag með liðinu í hálfleik og síðan eru fleiri myndir frá leiknum hér fyrir neðan.


Image URL: /aegirfc/upload/images/5.kv. gegn ÍR/HPIM1347_thumb.JPG


Image URL: 5.kv. gegn ÍR